Sveinsstekksfoss, Fossárfoss eða Nykurhylsfoss

Nykurhylsfoss er neðsti fossinn í Fossá. Fossinn er um 15 metra hár og fellur hann niður um þröngt gljúfur þar sem áin kastast til, skiptist í flúðir og hyli og endar að lokum í Nykurhyl sem er um 9 metra djúpur þar sem mest er.
Vatnasvið Fossár er um það bil 113 km2. Aðalupptökin eru í Líkárvatni, þaðan fellur áin um 20km leið í yfir 30 fossum út Fossárdal til sjávar í Berufirði. Rennsli árinnar er ákaflega misjafnt eftir árferði og tíðarfari og getur hún á skömmumtíma breyst úr litlum og sakleysislegum læk í hina mestu forynju sem engu eirir.
Mælingar hafa verið gerðar á vatnsrennsli Fossár í yfir 50 ár.
Nykurhylur er undir neðsta fossinum. Þar var nykur (Fossbúi), sem lengi var reynt að losna við en það tókst ekki fyrr en skírnarvatni var hellt í ána eftir skírn á bæ í dalnum.
Nykur var vatnavera sem birtist oft í gervi hests eða ungs manns. Nykur bjó í vatni og reyndi að draga ungar stúlkur og börn í vatnið til sín. En hann mátti ekki heyra nafnið sitt og ekki þoldi hann að gert væri krossmark. Þá hvarf hann.