Búlandstindur er 1069 metra hátt basaltfjall í gamla Djúpavogshreppi og er talinn vera um 8 milljón ára gamall. Búlandstindur þykir almennt vera í hópi formfegurstu fjalla á Íslandi og sumir trúa því að Búlandstindur sé orkustöð.

Í um 700 m hæð austur af Búlandstindi gengur fjallsrani, Goðaborg, og er sagt að þangað upp hafi menn burðast með goð sín strax eftir kristnitökuna til þess að steypa þeim fram af fjallsgnípunni. Aðrar heimildir segja svo: Goðaborg heitir hamrastallur hátt uppi í Búlandstindi. Stallur þessi er norðaustan í fjallinu, fyrir ofan það mitt, og er sagður breiður og sléttur ofan. Bratt og harðsótt er upp þangað. Sumir segja vatn þar uppi nálægt, er þvegin hafi verið í innyfli þeirra dýra, sem þar var fórnað goðunum til árs og friðar.